Um okkur
Við (Vilhjálmur Þórarinsson og Guðbjörg Ólafsdóttir) fluttum hingað með
sonum okkar að Litlu-Tungu 2 árið 1980 og höfum rekið búið síðan. Í raun er Litla-Tunga tvö býli og við tókum yfir Litlu-Tungu 1 árið 1987.
Býlið er 480 ha allt í allt og megnið af því er notað sem beitarland fyrir hestana okkar, nautgripi og kindur. Um 100 ha eru tún.
Með okkur búa og starfa þrír sona okkar – Guðni, Þórarinn og Ketill.
Guðni býr með danskri tengdadóttir okkar Kathrine - en hún sér um að temja hestana - að Litlu-Tungu I.
Litla-Tunga er áreiðanlega mest þekkt fyrir umfangsmikla heysölu.
Hvert sumar er gríðarlegt magn af heyi slegið, bundið og pakkað og geymt í Litlu-Tungu. Yfir veturinn er það svo einkum selt í hesthús í nágrenni Reykjavíkur eða flutt út til Færeyja.
Auk búskaparins og heysölunnar rekum við verktakafyrirtæki og vörubílaútgerð.
Þetta er fjölskyldufyrirtæki sem við tökum öll þátt í.
ENGLISH