Ljúfur in his first herd.

Menu:

english flag ENGLISH


Annað:

Gallerý
Ræktunarmerar

Folöld 2007
Tenglar


Ræktun

Ástríða okkar eru hross enda höfum við verið viðloðandi þau meira eða minna síðan við munum eftir. Með ræktun okkar leitumst við eftir að rækta heilbrigð, áköf gæðahross með framúrskarandi geðslag og gang.

TryppiRæktunarmerarnar hafa allar verið tamdar eða jafnvel færðar fyrir dóm og verið vandlega valdar vegna kosta þeirra. Við leggjum áherslu á merar sem eru vinnusamar, samstarfsfúsar í geðslagi, heilsteyptar og hreingengar  með gott tölt. Sérhvert ár eru þær hver og ein valdar með graðhestum sem okkur finnst hæfa þeim.

Margar ræktunarmera okkar eru afkomendur heiðursverðlaunaða stóðhestsins Ófeigur frá Flugumýri og Sörla frá Sauðárkróki. Okkur finnst þeir vera tveir af þeim mikilvægustu ræktunarhesta sem um getur og höfum mjög góða reynslu með afkomendur þeirr.
Í gegnum árin hafa stóðhestar frá hinu framúrskarandi ræktunarbúi Miðsitju verið mikið notaðir í ræktun okkar og sumir jafnvel áður en þeir fóru í dóm t.d. Spuni frá Miðsitju (fyrstu verðlauna afkvæmi) og Keilir frá Miðsitju (heiðursverðlaun fyrir afkvæmi).

Árið 2004 var Litla-Tunga tilnefnd til “Ræktunarbú Ársins” á Íslandi ásamt níu öðrum ræktunarbúum. Það ár var merin okkar Björk frá Litlu-Tungu
(undan Spuna fBjörkrá Miðsitju) best í sínum flokki á Landsmótinu á Hellu og
hún er eins og er heimsmethafi hvað varðar hæstu einkunn sem 4 vetra íslenskt hross hefur nokkru sinni fengið.

Uppeldi

Það er mikilvægt að hrossunum okkar líði alltaf vel og fái allt sem þau þarfnist! Við viljum af yngri hrossin þroskist í heilbrigð, sterk og öflug hross og gerum allt sem mögulegt er til að þau fái sem best uppeldi fyrst á stórum, gróskumiklum stykkjum þar sem þau geta hlaupið um á sumrin og veturna og þegar kemur að gjöf þá fóðrum við þau bara á gæða heyi.
 
Til að koma í veg fyrir skort á vítamínum og steinefnum gefum við þeim Basiblock efnafötur sem að gefa þeim nauðsynleg vítamín og steinefni inniheldur að auki náttúruleg efni sem stuðla að almennri heilsu hrossins. Enn fremur ormahreinsum við hrossin reglulega og snyrtum hófa og látum laga tennur þeirra.Folöld

Öll hrossin frá Litlu-Tungu eru örmerkt, frostmerkt og skráð í Veraldarfeng (Worldfeng).
 
Ef þið hafið áhuga á hrossi frá okkur eða þurfið bara upplýsingar hafið endilega samband við okkur. Við eigum að öllu jöfnu vel tamin afþreyingar, útreiðar og keppnishross - á mismunandi stigum tamningar - og efnileg ung hross af góðum ættum til sölu.