Fréttir
- islenska síðan er tví miður ekki uppfært eins og er.
22.8.08
Basiblock
efnaföturnar komnar
Nú eru komin
aftur til okkar Basiblock efnaföturnar. Þær eru í 20 kg og 60 kg pakkningum.
Þessar tegundir eru ætlaðar hestum, sauðfé og nautgripum.
Basiblock er vönduð fæðubótaefni, sem
- Bætir upp
vítamín- og steinefnaskort
- Styrkir
ónæmiskerfið, liði og sinar
- Eflir varnir gegn
ormasýkingum
- Er auðvelt í notkun og veðurþolið
- Byggir upp vörn gegn ofnæmi og sólarexemi
27.1.2008
Hestatanntækni
Eins og
undanfarin 3 ár, mun Mai K. Nicolaisen koma aftur til að sinna tannlækningum á
hrossunum hér að Litlu-Tungu og einnig á fleirum stöðum á Suðurlandi.
Við munum fara að Höfn aftur í ár og að auki nokkur hesthús í nágrenni Selfoss. Mai er næstum fullbókuð en enn er pláss fyrir nokkur hross.
16.1.2008
Heimasíðan komin í gang aftur
Við höfum átt í smá vægilegum tækniörðuleikum með
heimasíðuna okkar og hún hefur ekki verið uppfærð um hríð en nú virðist allt
vera að komast í lag.
Uppfærslur koma fljótlega.
17.8.2007
14.8.2007
Björk fylfull
Við
völdum að fara með Björk undir hinn fjögurra vetra gamla stóðhest Dug frá Þúfu
þetta árið. Hún fór þangað með merfolald sitt undan Hróð frá Refsstöðum og þær
komu heim nú nýverið eftir að búið var að staðfesta að Björk var fylfull.
Dugur er
undan Sveini-Hervari frá Þúfu og Dröfn frá Þúfu sem gerir hann að albróður
Sveinu frá Þúfu(8.14)
Dugur hefur sjálfur 8.25 í aðaleinkunn - fjórgangshestur - og hann er eins og er þriðji hæst dæmdi fjögurra vetra folinn þetta árið.
27.7.2007
Tvær merar enn
fylfullar
Framtíð og Nös
komu heim í gær undan Örn frá Efri-Gegnishólum. Þær voru sónaðar og báðar merar
eru fylfullar.
Hann er eins og er fimmti hæsti hesturinn í 4 vetra flokki þetta árið. Örn
er undan Óðs-syninum Aron frá Strandarhöfða(8.54) og Hrönn frá Efri-Gegnishólum
(8.08).
Framtíð var sýnd uppá 7.99 í aðaleinkunn og þar af 8.21 fyrir hæfileika. Hún
er undan Kveik frá Miðsitju (fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi) og Venus frá
Skarði(8.26 í aðaleinkunn – 8.73 fyrir hæfileika).
25.7.2007
Ábot fylfull
Ábot kom heim fyrir um viku síðan fylfull eftir Gaum
frá Auðsholtshjáleigu. Gaumur hefur 8.06 fyrir byggingu og 8.84 fyrir hæfileika
sem gefur honum 8.53 í aðaleinkunn.
Ábót hefur 7.89 í aðaleinkunn og er undan fyrstu verðlauna stóðhestinum Glókolli frá Þverá í Skíðadal.
20.7.2007
Glæta fylfull
Glæta kom heim í gær og er fylfull eftir hinn fyrstu
verðlauna stóðhest Spóa frá Hrólfsstaðahelli.
Spói er undan
fyrstu verðlauna merinni Snilld frá Hrólfsstaðahelli (undan Hrannari frá
Höskuldsstöðum) og fyrstu verðlauna stóðhestinum og Orra syni Stæl frá Miðkoti.
Glæta er undan fyrstu verðlauna stóðhestinum Glókolli frá Þverá í Skíðadal.
10.7.2007
Nýtt hringgerði
Gamla hringgerðið okkar var gert úr plöstuðum böggum árið 2004 og var orðið
frekar þreytt fyrir löngu síðan og notagildi þess hafði rýrnað umtalsvert eftir
því sem að baggarnir urðu eldri.
Við ákváðum fyrir nokkrum vikum síðan að gera einhvað í því og hérna er hið
nýja og örlítið uppfærða útgáfa.
26.6.2007
Síðasta folaldið í Litlu-Tungu þetta árið
Síðasta merin sem við vorum að bíða eftir að kastaði þetta árið var Dúa,
þar sem að Drottning var ekki fylfull.Hún kastaði á laugardagsmorgun og útkoman var móálottur hestur undan Ljúf
frá Vakurstöðum.
23.6.2007
Glódís kastar
Glódís var undir Þrist frá Feti síðasta sumar og eignaðist í gær afkvæmið.
Svart hestur með hvíta sokka á afturfótum.
22.6.2007
Silfra og Þruma fara undir Dug frá Þúfu
Hann er 8.39 í byggingu, 8.15 fyrir hæfileika og 8.25 í aðaleinkunn.

20.6.2007
Snjall kemur í merarnar
Þetta árið ætlum við að notast við hinn unga hest Snjall frá Vakurstöðum
hérna í Litlu-Tungu á þrjár af merum okkar; Drottningu, Glódísi og Eyjalín.
Flestar hinna meranna hafa verið keyrðar til hesta sem okkur finnst efnilegir
og hæfa merunum.
20.6.2007
Leiknir mættur
Eins og vanalega er Leiknir í hólfi hér í Litlu-Tungu á vegum eigenda
hans.
16.6.2007
Frostmerkingar
Áður en við setjum út veturgömlu tryppin á sumarhagana, frostmerkjum við
þau á bakið (þar sem hnakkurinn kemur til með að verða) til að geta auðveldlega
greint þau í sundur.
Fyrsta talan er síðasta talan í ártalinu, svo kemur merkið okkar L og T
(Litla-Tunga) sameinað í eitt merki og loks kemur númer hestsins.
13.6.2007
Nýi hvolpurinn okkar
Smella heitir nýjasti fjölskyldumeðlimur okkar. Hún kom hingað um miðjan maí og er langömmubarn hennar Rósu okkar.
Það er sláandi hvað þær eru líkar.

09.6.2007
Björk kastaði í gærkvöldi
Þetta er gullfallega merfolaldið sem Björk kastaði í gærkvöldi. Hún er
svört með sokk á vinstri afturfæti.
08.6.2007
Elding kastar
Í dag lítur hún ótrúlega vel út miðað við að vera orðin 27 ára og vera með
folaldi nánast samfellt frá unga aldri.
05.6.2007
Folaldamyndir
Fyrstu dagarnir í
hinum stóra heimi fyrir afkvæmi; Glettu, Kliðju og Nös. Öll þrjú eru merar.
Gletta x Ljúfur frá Vakurstöðum
Kliðja x Ketill frá Vakurstöðum
Nös x Ljúfur frá Vakurstöðum
1. Júní 2007
Folald Issu
Issa kastaði í gærmorgun og eignaðist fallegan móbrúnan hest undan
Breki er fjögurra vetra og er undan Brá og Keili frá miðsitju.
26. Maí 2007
Þrjú folöld í dag
Í morgun höfðu Kliðja, Nös og Gletta kastað. Þær eignuðust allar merar.
23. Maí 2007
Meira um folöld
Við höfum verið að bíða spennt eftir folaldi Framtíðar. Hún brást okkur ekki og eignaðist rauða meri með blesu og sokk. Faðirinn er Hróður frá Refsstöðum.
Brá kom okkur á óvart í dag hafði eignast meri, sem er móálótt að lit en hún er undan Ljúf frá Vakurstöðum.
21. Maí 2007
Fyrsta folald ársins fætt
Eyjalín kastaði fyrsta folaldi ársins í gærmorgun. Það er móálóttur hestur með stjörnu.
Faðir hans er Ljúfur frá Vakurstöðum (verður 4 vetra í ár) en hann er sonur Óðs frá Brún og Lyftingar frá Ysta-Mó
Ljúfur er albróðir hinnar þekktu merar List frá Vakurstöðum (sem er með 10 fyrir tölt) og hann er sam-mæðra og fyrstu verðlaunar stóðhesturinn Leiknir frá Vakurstöðum.
Eyjalín er undan Seif frá Sauðárkróki.
17. Maí 2007
Viður og Þórir Reykjavíkur meistarar
Um síðustu helgi var Reykjavíkur meistaramótið haldið og Þórir Hannesson og hestur hans Viður frá Litlu-Tungu unnu tölt flokk ungmenna.
(Viður er sonur Issu frá Litlu-Tungu og Keilis frá Miðsitju.)
Tölt ungmenna
1 Þórir Hannesson / Viður frá Litlu-Tungu 2 - 7,22
2 Rósa Birna Þorvaldsdóttir / Bylur frá Kleifum - 6,89
3 Valdimar Bergstað / Vatnar frá Vatnsholti - 6,72 - Reykjavíkurmeistari
4 Halldóra Sif Guðlaugsdóttir / Villirós frá Hvítanesi - 6,56
5 Linda Rún Pétursdóttir / Stjarni frá Blönduósi - 6,22
2. Maí 2007
Klassík vinnur sitt fyrsta mót
Við
vorum ánægð með að frétta að í gær að Klassík – fyrstu verðlaunar meri
sem við seldum fyrir viku síðan - og nýi eigandi hennar, hin 14 ára
gamla Inga Birna Ársælsdóttir unnu sitt fyrsta mót saman sem var á
vegum hestamannafélagsins Sóti.Klassík verður 6 vetra í ár og þetta var hennar fyrsta keppnismót.


15. April 2007
Hross til sölu
Síðan með hrossum til sölu hefur verið uppfærð og mörg hross hafa bæst í hópinn. Einnig eru komnar fleiri myndir og meiri upplýsingar munu koma um sérhvert hross eins fljótt og mögulegt er.



11. Mars 2007
Eftir heimsókn tannlæknisins
Það tókst gríðarlega vel eins og áður og nóg að gera hjá Mai allann tímann sem hún var hérna. Hún gerði að tönnum 95 hrossa þessar tvær vikur sem hún var hérna.
Á meðal staðanna sem hún vann á voru: Hornafjörður – hún hélt einnig fyrirlestur hestatannlækningar - Akurgerði, Hafnafjörður, Langholt og vitaskuld hérna í Litlu-Tungu.
Við viljum þakka Mai K. Nicholaisen fyrir að koma aftur til Íslands og fyrir þann gríðarlega áhuga sem fólk hefur sýnt hennar vinnu.
Á meðal þekktra hrossa sem gengust undir tannhirðingu:

• Þula frá Hólum
• Tigull frá Gygjarhóli
• Freyðir frá Hafsteinsstöðum
• Órator frá Grafarkoti
• Þjótandi frá Svignaskarði
• Orka frá Sauðárkróki
...og margar aðrar.
21. janúar 2007
Mai hestatanntæknir kemur til landsins
Mai K. Nicolaisen dönsk hestatanntæknir kemur til landsins þann 14. febrúar n.k. Hún ætlar að taka að sér verkefni á Suðurlandi, Reykjavík og víðar ef áhugi er.
Mai er sú fyrsta í Skandinaviu sem er menntaður hestatanntæknir og hefur lokið hæsta prófi í sértækum skóla í Bandaríkunum frá alþjóðlegum samtökum hestatanntækna (IAED). Siðustu sex árin hefur hún starfað við iðnina i Danmörku þar sem hún er vel þekkt og viðurkennd í starfi.
"Það er algengt að hross forðast að láta safna sér í höfuðburð eða að sveigja háls til hliðana vegna hvassra tannbrodda, bitskekkju og lítíð pláss aftast í munni", segir Mai. Röspuninn hjá Mai endist í a.m.k. eitt ár og jöfnunin á bitinu 3-4 ár (eða alltaf). Hún meðhöndlar alvarlegri tanngalla og réttir bitskekkjur.
"Reynsla okkar er mjög góð. Tamningin tekur styttri tima ef hrossið er sáttara og lausara í beisli og engin vandamál koma upp tengd tönnum. Þetta borgar sig svo sannarlega þegar hross er fljót tamið og auðselt og rétt tannhirða getur lengt lifið hjá verðmætri stóðhryssu", segir Vilhjálmur Þórarinsson í Litlu-Tungu.
"Elding frá Þverá sem er orðinn 27 ára gömul var hætt að halda holdum og átti bara eftir að drepast vegna fóðurvasa og aftasti jaxlins sem var genginn upp í tannbeinið. Þá fréttist af þessum tanntæknir og við fluttum hana inn til að laga munnin á Eldingu. Áður fóðraðist hún illa og hélt ekki en er nú í finu holdum og fylfull".
Í Litlu-Tungu fengu allar hryssur í folaldseign tannhirðu ásamt öllum tamningahrossum.
Margir tamningamenn notuðu lika tækifærið þegar Mai kom í heimsokn í fyrra og voru þeir hæst ánægðir með vinnubrögð hennar og árangurinn hjá hrossunum sinn á eftir. Meðal hrossanna sem til hennar komu voru t.d.:
- Hátíð frá Úlfsstöðum
- Eldjárn frá Tjaldhólum
- Snar frá Kjartansstöðum
- Röðull frá Kálfholti
- Álfur frá Selfossi
- Burkni frá Feti
- Þorsti frá Garði
- Björk fra Litlu-Tungu
- Æsa frá Flekkudal
Spurningar og pantanir:
Mai K. Nicolaisen info@equine.dk eða sími +45 2032 3280
Guðni Vilhjálmsson Litlu-Tungu sími 8934808
ENGLISH